Við hjá Weleda höfum meira en 80 ára reynslu af meðferðargildi jurta og höfum aflað okkur víðtækrar þekkingar. Þessa þekkingu notum við við samsetningu andlitsvara okkar.
Andlitsvörur Weleda eru eingöngu framleiddar úr náttúrulegum hráefnum. Andlitslínurnar þrjár eru búnar til úr jurtum sem sannanlega hafa jákvæða virkni á húðina.
Íris andlitsvörurnar styðja við hið náttúrulega jafnvægi húðarinnar, Möndlu andlitsvörurnar róa viðkvæma húð (rósroða) Villirósar andlitsvörurnar örva og endurnýja húðina og Granatepla andlitsvörurnar eru fyrir þroskaða húð, næra og styrkja og örva frumuendurnýjun húðarinnar.
Að sjálfsögðu má svo blanda hinum ólíku vörum saman eða nota mismunandi línur eftir árstíðum eða lífsskeiðum.






