Calendula Wind and Weahter Cream

Morgunfrúar-kuldakremið verndar hina viðkvæmu húð andlitsins gegn kulda og vindi. Hreint bývax og ullarfeiti mynda varnarvegg án þess að hindra öndun húðarinnar. Dýrmæt möndluolía er góð fyrir þurra og sára húð og gerir hana merkjanlega mýkri. Kuldakremið er án vatns og mjög drjúgt í notkun. Efni úr lífrænt ræktaðri Morgunfrú eru róandi fyrir húðina. Hentar jafnt börnum sem fullorðnum með viðkvæma húð.

Ofnæmisprófað á mjög viðkvæmri húð. Má nota allt frá fæðingu. Laust við gervi ilm-, litar-, og rotvarnarefni. Engin jarðolía.

Notkun
Berið þunnt lag húðina áður en haldið er út í rok og/eða kulda

Innihald
Möndluolía, ullarfeiti, bývax, hreinar ilmkjarnolíur, efni úr blómi Morgunfrúarinnar

30 ml