Nýtt – Lífrænt Lavender frá Moldavíu

Dæmigert Weleda-verkefni: Í hinu fjarlæga þróunarlandi Moldavíu er bóndi sem ræktar lífrænt Lavender við bestu aðstæður.  Þessi góða samvinna verður til þess að lítið fyrirtæki  blómstrar og Weleda-vörurnar ilma!

Þegar maður hugsar um Lavender, þá sér maður fyrir sér sólbakaðar víðáttur og djúpbláa akra í Frakklandi. Þegar maður andar að sér ilminum af Lavender-vörunum frá Weleda þá er óhætt að leyfa ímyndunaraflinu að bera sig enn lengra – því auk bændanna í Frakklandi vinna bændur í Búlgaríu, Suður-Afríku og Moldavíu hreina Lavenderolíu sem þjónar sem ilmgjafi fyrir meira en 50 vörutegundir Weleda. Í Moldavíu ræktar fyrirtækið Resendjer í  Minceni Lavender á lífrænan hátt og vinnur það síðan áfram í hreina ilmkjarnaolíu.

Moldavía var áður fyrr einn stærsti framleiðandi hreinna ilmkjarnaolía. Þegar Sovétríkin liðuðust í sundur árið 1992 hurfu því miður einnig margir hektarar af Lavenderplöntum, sem höfðu einkennt Moldavíu árum saman. Íbúarnir höfðu enga þekkingu á frjálsri verslun. Nú er hins vegar gömul hefð að lifna við. Í austurhluta landsins er verið að rækta upp lífræna Lavenderakra, sem veita meira en 50 bændafjölskyldum von og lífsviðurværi með því að nota land sem áður var óræktað og einskis nýtt. Fyrstu sprotarnir af tegundinni Lavendula angustifolia voru gróðursettir haustið 2000. Nú blómstra meira ein milljón Lavenderplöntur á 150 hektrara stórum akri.

Af hverju gengur svona vel að rækta Lavender í Moldavíu? Vegna hins einstaklega frjóa jarðvegs, sem er þekktur sem “svarta moldin”, hefur aldrei þurft að nota aukaefni til ræktunar þar. Það var ein helsta ástæða þess að hráefnainnkaupastjóri Weleda mælti með þessu verkefni. Strax við fyrstu skoðun voru Lavenderplönturnar í besta hugsanlega ástandi. Þær stóðu allar þráðbeinar og blöðin voru grágræn, alveg eins og þau eiga að vera. Loftslagið og jarðvegurinn virtust vera sköpuð til ræktunar ilmjurta.  Nú eru akrarnir löngu búnir að fá lífræna vottun og um miðjan júlí ár hvert vinna um 200 verkamenn við uppskeruna. Úr einum hektara af Lavenderplöntum má búa til 40-45 kíló af ilmkjarnaolíu.

Hvar er Moldavía eiginlega?

Moldavía er staðsett á milli Rúmeníu og Úkraínu. Landið er 33.800 ferkílómetrar að stærð, hæsta fjallið heitir Balaneschty og er 430 metrar að hæð, af hverjum 1000 íbúum landsins eiga 16 tölvu og 56 eiga bíl.

Tungumálið er moldavíska, í landinu búa saman Rúmenar, Rússar, Úkranir, Þjóðverjar og fleiri þjóðarbrot og flestir tala víst a.m.k. þrjú tungumál.

Margir íbúar Moldavíu lifa undir fátækramörkum, sérstaklega í dreifðum byggðum landsins. Flestir bændanna eru með sjálfsþurftabúskap.

Hið sígilda: Lanvender frá Provence héraðinu í Frakklandi

Í margar aldir hefur Lavender vaxið villtur í hæðum Haute-Provence í Suður-Frakklandi. Hann hefur verið notaðiur bæði til lyfjagerðar og sem ilmgjafi. Þessi djúpbláa lækningajurt hefur ekki verið ræktuð nema síðan 1920 þegar eftirspurnin fór stigvaxandi vegna ilmvatnsframleiðslu.

Þessar sólarþyrstu plöntur framleiða ekki ilm nema þær séu ræktaðar eða vaxi 600-700metra yfir sjávarmáli. Beint við akurinn unnu bændurnir hina verðmætu blómaolíu og settu hana beint í litil eimingartæki sem þeir höfðu með sér. Í dag eru risastórar verksmiðjur í Provence héraðinu sem framleiða ilmkjarnaolíur.  Aðferðin – þ.e. gufueiming- er þó sú sama, hvort sem olíurnar eru framleiddar í stórum stíl eða smáum.

Lavenderplönturnar eru látnar þorna örlítið og gufan sem kemur undan þeim leysir ilmkjarnaolíurnar frá plöntunni og tekur þær með sér. Gufan er síðan leidd í kælirör og þaðan í sérstakt ílát, þaðan sem auðvelt er að aðskilja gufuna og olíurnar aftur.

Til að vinna eitt kíló af hreinni ilmkjarnaolíu þarf 100 kíló af Lavenderblómum.  Það er alls ekki svo mikið: Til að vinna eitt kíló af rósaolíu þarf þrjú tonn af blómum.

Áður en Lavenderolían er notuð í snyrtivörur og lyf er hún látin þroskast í nokkra mánuði og fer í umfangsmiklar gæðaprófanir. Miklvægasti mælikvarðinn verður alltaf lyktarskyn mannsins.

Ljómandi blómstur með langa hefð

Fjölskylda: Lavender tilheyrir varablómaætt. Blómið er auðþekkjanlegt af hinum mörgu litlu fjólubláu blómum sem blómstra á bognum greinunum.  Blöðin eru sérstaklega mjó og eru mismunandi að lit, þau neðri eru þakin hvítum hárum og hin efri eru grágræn.

Fram að fyrstu uppskeru Lavanderplöntunnar líða þrjú ár. Við góðar aðstæður lifir Lavenderplantan í allt að þrjátíu ár.

Efnin í ilmkjarnaolíunni virka strax róandi á miðtaugakerfi mannsins, þau eru slakandi og stuðla að heilbrigðum svefni. Taugaóstyrk, svefnörðugleika, spennu, krampa, meltingarvandamál eða hjarta- og blóðrásartruflanir má lina með Lavender. Meira að segja í fornöld var Lavender vinsælt vegna slakandi og róandi áhrifa sinna.

Á íslensku kallast Lavenderplantan einu nafni – Lofnarblóm. Á Íslandi hefur plantan einkum verið notuð þurrkuð og sett í línskápa og fataskápa, bæði vegna ilmsins og til að fæla frá möl.

Náttúrulækningafélagið Theopharastus valdi Lavender lækningajurt ársins árið 2008. Við lifum á tímum endalauss áreitis úr öllum áttum og því  var virkni Lavender til að róa taugarnar mikilvægust í mati dómnefndarinnar.

Það eru til 25 tegundir af Lavender.  Eftirfarandi tegundir eru notaðar í lækningaskyni:

Lanvadula angustifolia, Lavandula latifolia, Lavandula stoechas, og Lavandula hybrida. Á sextándu og sautjándu öld trúðu menn því að Lavender verndaði fólk gegn pestinni og gegn kóleru. Ræningjar báru þá gjarnan á sig edik með lavender áður en þeir ruddust inn til veiks fólks til að ræna það og rupla.

“Herbes de Provence” er heimsfræg kryddblanda, mest notuð við Miðjarðarhafið. Stór hluti þessarar kryddblöndu er Lavender.

Nýja Lavender slökunarsturtusápan  róar og verndar

Lavender – rólegt, fínt, náttúrulegt. Hreint og ferskt eins og  sængurfötin í línskápnum, eins og djúpbláir akrar í suðrænni sól, eins og það sem við erum vön og höfum þekkt í margar kynslóðir. Viðkvæm blá blómin eru uppspretta hreinnar ilmkjarnaolíu sem tryggir ljúfa slökun – hún er unnin fyrir Weleda vörurnar.

Í samneyti við vatnsflauminn úr sturtunni skolar nýja Lavender slökunarsturtusápan óróleika og streitu í burtu og líkami og sál öðlast ró og frið. Mild náttúruleg hreinsiefni þvo húðina á meðan og fín sesamolía mýkir hana og sléttir. Nýttu þér rólegan kraft Lavenderplöntunnar alltaf þegar þú þarft á slökun að halda. 

Ef þú vilt meira Lavender, þá er Lavender slökunarolían tilvalin til að bera á líkamann eftir sturtuna. Hún tryggir einn meiri slökun og stuðlar að rólegum og góðum svefni. Möndlu- og sesamolía mýkja húðina.

Til að ná fullkominni afslöppun mælum við með þyngdarleysi og höfgum ilmi í Lavender slökunarbaði.  Í heitu vatni eru bestu skilyrði fyrir hin náttúrulegu efni til að ná fram hámarksvirkni.  Í  Weleda Lavender slökunarvörunum eru engin gervi litar- og rotvarnarefni, engin hráefni úr jarðolíum og þær hafa mjög góð áhrif á húðina.