Lúxus sturtuápa sem er úr fræjum lífrænt ræktaðra granatepla. Sturtusápan hreinsar húðina mjúklega og gefur henni raka. Granateplin eru rík af andoxunarefnum sem vernda húðina gegn geislun og blandan af þeim, sesamolíu og olíu úr macadamia-hnetum gefa húðinni góða næringu. Þannig heldur hún sínu náttúrulega rakastigi og mýkt. Sturtusápan ilmar af sandelviði, vanillu, davana og blóðappelsínu, sem koma jafnvægi á bæði líkama og sál.
Innihald:
Vatn, sykurtensíð, sesamolía, alkóhol, amínósýrur, sólblómaolía, glýseríð, hreinar ilmkjarnaolíur, karragen, macadamia-hnetuolía, milletþykkni, granateplafræjaolía, efni úr sólblómablöðum, xanþín, mjólkursýra

