Villirósar sturtusápan er kremkennd og léttfreyðandi sápa sem verndar og dekrar við húðna með olíu úr Rosa Mosqueta sem vex villt í Chile. Hrein ilmkjarnaolía úr rósum gefur mjúkan og róandi ilm og heldur húðinni mjúkri og sléttri. Fín sesamolía viðheldur raka húðarinnar og ver hana gegn ofþornun.
Sturtusápan hefur húðvænt ph-gildi og tryggir því milda hreinsun húðarinnar. Engin gervi ilm-, litar- eða rotvarnarefni. Ofnæmisprófað.
Innihald
Vatn, sesamolía, sykra, alkóhól, amínósýrur, glycerin, villirósarkjarnaolía, xanþín, mjólkursýra, hreinar ilmkjarnaolíur
200 ml

