Blóðappelsinur, davana og sendelviður

- ríkur og djúpur ilmur

Svissneski ilmsérfræðingurinn Andreas Wilhelm þróaði ilm granatepla seríunnar fyrir Weleda.Við spurðum hann nokkura spurninga sem snerta þróun vörulínunnar.

”Þú þróaðir ilminn af Weleda granateplaseríunni. Hvaðan fékkstu innblástur?

Ilmurinn átti að henta konum frá 40 ára aldri og upp úr. Mikilvæg atriði við samsetningu ilmsins voru því að hann átti að vera með ávaxtakeim, frískandi og kvenlegur. Ég vildi líka að ilmurinn hvetti konur til að prófa nýjar leiðir. Granateplið er hefur örvandi áhrif á hugann , þar sem það er upprunnið í austurlöndum. Þessi sterki rauði litur ávaxtarains hafði áhrif á mig og þess vegna má lýsa ilminum sem ”öflugum og djúpum”.

Nikkelkeimurinn í granatepla seríunni kemur frá blóðappelsínum og Davana olíu

Af hverju er ilminum lýst sem ”örvandi og kvenlegum?”

Þökk sé vanillu og sandelviði þá upplifir fólk ilminn sem örvandi og ilmblandan eins og hún leggur sig gerir ilminn kvenlegan.

”Skipti það einhverju máli fyrir þig að vinna með hreinar ilmkjarnaolíur semWeleda notar í staðinn fyrir gervi-ilmefni”?

Algjörlega. Það er miklu flóknara að vinna með hreinar ilmkjarnaolíur. Á meðan gervi-ilmur kemur úr einni sameind, þá getur hrein ilmkjarnaolía verið samansett úr mörg hundruð hlutum. Það gerir verkefnið miklu erfiðara en einnig miklu yfirvegaðra. Svo er það auðvitað miklu stærri áskorun.

Getur þú í lokin frætt okkur um hvernig maður fer að því að því að búa til ilm?

Ég reyni að setja mig bæði inn í lífsstíl markhópsins og það hvernig varan á að líta út. Síðan reyni ég að ná þeirri tilfinningu í gegnum jurtirnar.  Þess vegna inniheldur ilmurinn ekki bara ilmefni sem slík, heldur á ilmurinn að gera eitthvað sérstakt fyrir markhópinn líka.