Sítrussalat með granateplum

Einstaklega fallegt og gott vetrarsalat

Fyrir fjóra:

2 stk. blóðappelsínur

2 stk. appelsínur

1 stk. lime

2 stk. mandarínur

1 stk. grape

1 stk. granatepli

Aðferð:

1.Skrælið ávextina (nema granateplið) með góðum hnífi. Það er nauðsynlegt að ná burtu allri hvítu húðinni undir berkinum til að bragðið verði sem best. Skerið síðan ávextina í bita.

2. Blandið ávöxtunum varlega saman og hafið allan safann með. Deilið salatainu í fjórar skálar.

3. Skerið granateplið í tvo hluta. Notið matskeið til að ná fræjunum úr eplinu og dreifið þeim yfir ávextina.

Þessi uppskrift kemur úr bókinni ”Fruktfrestelser” eftir Claes Karlsson (B.Wahlströms). Mynd: Sara Danielsson.

Skerið síðan ávextina í bita og blandið þeim varlega saman í skál.